Skip to main content Skip to footer

Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins

Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins uppfyllir kröfur jafnlaunastaðals ÍST 85:2012 og hlaut fyrst vottun árið 2023 og hér má sjá vottunarskírteini frá vottunarstofunni Versa Vottun. Link to dropbox.
  
Jafnlaunakerfi Tónskóla Sigursveins nær til allra starfsmanna MH. Meginmarkmið þess er að tryggja að starfsfólk óháð kyni njóti sömu launakjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. 

Kerfið inniheldur stefnuskjöl, verklagsreglur, gátlista og form (eyðublöð). Öll skjöl bera númer sem vísa til númera greina jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012.

Jafnlaunakerfið hefur verið skjalfest og þannig hefur umgjörð verið sköpuð til að viðhalda því, tryggja stöðugar umbætur, eftirlit og viðbrögð.

Meginstoðir jafnlaunakerfisins eru fimm

Jafnlaunastefna 
Skipulagning 
Innleiðing og starfræksla
Gátun
Rýni stjórnenda

Vottun kerfisins er til þriggja ára í senn en vottunaraðili mun fylgja vottun eftir með árlegum eftirlitsúttektum.

Vilji starfsfólk eða aðrir hagsmunaaðilar koma erindum í tengslum við jafnlaunakerfi MH á framfæri skulu þeir fylla út eftirfarandi eyðublað: Athugasemd vegna jafnlaunakerfis MH